Könnun

ég er að fíla...

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Leit

can you imagine no love, pride, deep-fried chicken

14. febrúar 2007 klukkan 22:25

ég ritaði eftirfarandi hugleiðingar mínar klukkan 16:26 í dag!


já góðan og blessaðan daginn ætli maður hendi ekki inn svosem einni færslu um dagdrif mín! alltaf sama gamla sagan hérna. Fótboltinn og skólinn teppa mest af tíma mínum en þó hefur maður alltaf tíma fyrir vini og elskendur. svo hef ég eignast nýtt áhugamál...en það er að rúnta! og ég veit þið eruð að hugsa: "Gísli er svo leiðinlegur að hann er alltaf einn á rúntinum!" en nei það er ekki svo því ég hef eignast dyggan rúntfélaga í henni móður minni sem rúntar með mér um allar trissur en vill endilega hafa helv**** "Æfingaakstur" merkið aftan á! en það styttist í að ég fari að þræða stræti Akranesbæjar einsamall eða jafnvel með félagsskap, hver veit...og án Æfingaaksturs-skyltisins!

en svo er eitt sem mér liggur á hjarta...er það jákvætt fyrir æsku Akranesbæjar að Borgnesingar séu að stofna sinn eigin framhaldsskóla og við þurfum ekki lengur að sjá þessum *ritskoðað* og *ritskoðað* l*ritskoðað* *ritskoðað* fyrir kennslu og skemmtun?
- ég held að þetta sé bara jákvætt þar sem þetta kemur mjög í veg fyrir blöndun þessara tveggja kynstofna, þar sem þetta *ritskoðað* á að vera á sínum heimaslóðum en ekki að koma með rútu á hverjum morgni til að dvelja í samfélagi hinna siðmenntuðu og hvað þá að þykjast vera siðmenntaðir og vera á vistinni! höldum Akranesi hreinu!

endilega segja skoðun ykkar á þessu máli og næsta blogg mun ekki koma fyrr en það eru komin minnst 5 komment á þetta blogg! en ætla að fara að ganga örna minna og skunda svo á æfingu...l8er homos ;*


Borgarnes

skoðanir þær sem koma fram í þessu bloggi endurspegla á engan hátt skoðanir eða hugmyndir undirritaðs um Borgarnes, vildi bara vekja upp smá umræður! Borgarnes er fínn staður...eða svona alltílagi skulum við segja ;D


- ilsíG

P.S. lít ekki á Sölva sem Borgnesing en hann er ljúfur sem lamb eins og þið vitið öll!
Gísli Freyr
19 athugasemdir

en þeir fengu fiskinn í arf!

07. febrúar 2007 klukkan 13:15

já komiði margblessuð!  margt hefur á daga mína drifið að undanförnu en ég ætla nú ekki að hafa þetta langt samt...sit hérna inní sal með Gumma Ironmaster og við erum að gera nákvæmlega ekki neitt! en já að vikunni sem er liðinn frá síðasta bloggi og byrjum á föstudeginum...

var að vinna frá 3-3 með Agli kokki og nokkrum strákum að sjá um matinn á Herrakvöldi ÍA og gekk það sérdeilis vel. svo á laugardagsmorguninn þá spilaði ég minn fyrsta leik með meistaraflokk...kom inná þegar hálftími var eftir sem er nú ekki í frásögur færandi nema að ég setti tvö kvikindi! svo var bara legið í dvala það sem eftir var laugardagsins og svo leikur á sunnudaginn geng hk sem fór 1-1...RUGL!!!  svo er bara kominn miðvikudagur og ekkert að gearast nema fótbolti (fengum reyndar frí í gær nokkrir) og skóli =/
en ætla að enda þetta bara...blogga betur seinna ;)

l8er l8ís

Gísli Freyr
1 athugasemd

landafræði 103

31. janúar 2007 klukkan 16:43
já langaði bara að láta vita af mér...er búinn að vera veikur seinustu 2 daga og er enn frekar slappur en leiddist bara svo svakalega að ég ákvað að fara í skólann í morgun! er einmitt í landafræði með góðvini mínum honum ***** ******og er hann að fara á kostum! hann er nýsestur á stólinn sinn aftur eftir að hafa legið í gólfinu og er hugfanginn af því sem Eydís hefur uppá að bjóða í glærunum sínum! og nú teygir hann úr sér og setur hendurnar upp fyrir haus svo enginn sjái hvað standi á glærunum Þögull sem gröfin en já nenni ekki að blogga meira núna því ég ætla að halda áfram að horfa á leik ***** og pennans, sem virðist bæði tala og heyra!

enda þetta á mynd af góðvini mínum honum leó og einum skíthræddum borgnesingi sem leó er við það að lúskra á...eina sem þýðir á þessa þursa! l8er ;* og ***** fagnar eikkerju með pennanum sínum Hlæjandi

leó



Gísli Freyr
6 athugasemdir

"'cause ain't no such things as halfway crooks!"

27. janúar 2007 klukkan 05:37

að blasta: The Notorious B.I.G - Juicy

Já ég er kominn aftur og mér fylgir svakalegur bloggkraftur! Sá að Gummi aka Ironmaster var að gagnrýna mig fyrir bloggleysi þannig að ég ákvað að taka hann á orðinu og smella saman einni færslu fyrir svefninn. Lítið búið að gerast undanfarið nema bara skóli og...

að blasta: Mobb Deep - Shook Ones pt. II

...svo var leikur í gær! Við tókum á móti Haukum og má með sanni segja að þeir hafi farið heim með skottið á milli lappanna! Því við gerðum okkur lítið fyrir og unnum þá 9-0 Hissa...og án þess að vera eikkað að hæla sjálfum mér þá átti ég góðan leik bara (skoraði 6 og lagði upp 3 og reiknaðu nú)! en já svo var bara æfing í kvöld sem var fín og svo er ég pretty much búinn að liggja uppí sófa og horfá vídeó...búnnað horfá Phonebooth sem er nokkuð góð mynd og svo speccaði ég uppáhalds myndina mína, OldSchool, sem er alltaf jafn drepfyndin! svo er æfing á morgun sem á víst að vera um 4 tímar og verður maður væntanlega vel þreyttur eftir hana!

að blasta: N.W.A. - Straight Outta Compton

en já ég ætlaði að segja eikkað ógeðslega fyndið í þessu bloggi en ég bara man það ekki í augnablikinu þannig að þetta verður bara öm! en ætla að fara að sofa og ég lofa betri færslu eftir helgina...l8er l8ís ;] enda þetta á mynd af mér í webcam sem var tekinn fyrir örfáum mínútum...




góða nótt ;*

að blasta: Wu-Tang Clan - C.R.E.A.M.
Gísli Freyr
1 athugasemd

comeback ársins!

23. janúar 2007 klukkan 00:10


að blasta; fkn Wu-Tang Clan - Da Mystery Of Chessboxin'


já eftir þónokkra hvíld og margar andvökunætur undir feld þá hef ég ákveðið að byrja að blogga á ný! ætla að reyna að vera dulegur að henda inn færslum svo þið lesendur góðir getið reynt að skilja minn bælda persónuleika aðeins betur! kom reyndar hugmynd um að stofna bara bloggsíðu við nokkrir félagar, veit ekki hvort verður af því en það verður þá auglýst síðar bara ;D
en já lítið gerðist um helgina...ég spilaði einn furðulegasta fótboltaleik ever...en í hinu liðinu voru 14 leikmenn, þar af 3 fæðingarhálfvitar, og við töpuðum 2-1 þrátt fyrir glæsimarkið sem ég skoraði! =/ svo eftir leik þá fóru ég og sölvi ævintýri..."fórum" í bústað", á Venus í Borgarnesi og svo á Mörkina og herma fréttir að Sölvi hafi, eftir vonbrigðin með bústaðinn, náð sér í eina pólska á Venus...sel það ekki dýrara en ég keypti það! ;S svo voru bara ammæli hjá systur minni báða dagana nóg af kökum og góðgæti en ég fór nú hægt í það eins og sönnum íþróttamanni sæmir;D

en komið nóg fyrir fyrsta blogg...enda þetta á margt svo skemmtilegri mynd af okkur sölva á Venus á laugardaginn...l8er homos Glottandi

ég og sölvi rétt áður en sú pólska fangaði athygli hans ;D

Gísli Freyr
4 athugasemdir